Lýsing
Fersk blóm búrótarinnar eru handtýnd og blönduð við lífræna ólívuolíu með E- vítamínum. Ilmkjarnaolíunum Lavender, Rauð Mandarín, Ylang Ylang, Neroli, Mugwort og Hibiscus er bætt við blönduna. Þær dýpka vitundina, gefa hlýleika, andlega næringu og tjáningu.
Notkun:
- Mjög góð á sumrin, kemur á jafnvægi og hjálpar líkamanum að “teygja úr sér” og slaka á, en hjálpar einnig við einbeitingu og jarðtengingu.
- Svipuð “moxa” aðferðinni, sem er notuð við nálastungur. Mugwort olían eykur blóðflæði og orkuflæði til alls líkamans með því að auka flæðið til yfirborð líkamans.
- Gott er að setja olíuna svæði líkamans sem eru bláleit eða köld viðkomu, eins og t.d. á bláæðar sem þar sem blóðflæði er takmarkað.
- Sérstaklega góð á veturna eða þegar hendur og fætur eru kaldir, stífir og vöðvar bólgnir. Gefur yl og kraft sumarsins.
- Mjög góð sem smyrsli fyrir konur sem hafa óreglulegan tíðahring, eða þær sem byrja á breytingaskeiði of fljótt.
- Margar ljósmæður mæla með olíunni á meðan hríðum eða fæðingu stendur, eða jafnvel til að auðvelda brjóstagjöf.
- Hjálpar þeim sem verða oft fyrir ríkjandi áhrifum tunglsins, þ.e. þeir sem þurfa að koma jafnvægi á tilfinninga- og andlega næmni, gefur skýrleika, kraft og hlýleika frá sólinni.
Athugið:
Þó að Mugwort olían geti verið notuð til að hjálpa við þungun, mega þungaðar konur ekki nota olíuna á meðan meðgöngu stendur. Olían getur örvað hormónastarfsemina of mikið sem getur haft áhrif á viðkvæm stig meðgöngunnar.
Aðferðir til notkunar:
Nudd: Olían er notuð beint úr flöskunni fyrir nudd til lækninga. Gott er að nota strjúka taktbundið yfir vöðvana og draga fram hita á yfirborð húðarinnar.
Bað: 30 ml af olíunni er sett í heitt bað. Gætið þess að hafa baðið ekki of heitt til þess að fá aukin frískleika og slökun.. Bökunarsóda er svo bætt ofan í baðið.
Hitabakstrar: Mugwort olíunni er blandað við létthitaða ólívuolíu. Blöndunni er dýft ofan í mjúkan klút og sett á köld eða blá svæði líkamans. Setjið hitapoka yfir til þess að halda hitanum og auka áhrifin.
Sérstök meðferð fyrir konur þegar fullt er tungl: Nuddið olíunni yfir allan líkamann, eða a.m.k. yfir brjóst og kviðarhol, og liggið naknar undir fullu tungli í 30-60 mín. Mugwort olían eykur áhrif tunglsins og er mjög góð til þess að koma á jafnvægi æxlunarkerfi kvenna.
Orkustöðvar: Nuddið olíunni yfir stíflaðar orkustöðvar. Á sumrin er sérstaklega gott að nudda olíunni á hjartastöðina.