Umsagnir
Námskeið
Þann 27. október 2009 18:28, skrifaði Ólöf Guðmundsdóttir
Sæl Stefanía. Já það sem mér fannst um Heilunar og Blómadropanámskeiðið er: Það er mjög gott saman.Hefur gert mér mjög gott.Ég var fyrst ekki viss hvort ég ætti að koma. Aðþví ég hef aðeins kynnst hvorutveggja áður. En ég sló til og sé ekki eftir því. Hefur verið mikið álag á mér og í kringum mig þessar vikur undanfarið. En þetta námskeið hefur hjálpað mér að staldra við og hugsa betur um mig sjálfa. Og ef ég get hjálpað öðrum er það bónus fyrir mig, en það verður tíminn að leiða í ljós. Hún Stefanía kemur verkefninu vel frá sér.Ég vil þakka fyrir mig. Í nútímaþjóðfélagi veitir ekki af að stoppa aðeins og finna sinn frið , sem hægt er með svona námskeiði.Kveðja Ólöf.
–
Umsögn frá nemenda sem er að klára námskeið skrifað 21/10 2009
“Kennsla á heilunar og blómadropanámskeiði.”
“Kennslan er skýr og skilmerkileg.
Löng reynsla kennarans kemst vel til skila og gefur efninu meiri dýpt.
Sömuleiðis reynslusögur sem auka skilning á efninu og möguleikum heilunar.
Blómadropar og heilun spila vel saman og á vel við að kenna hvorutveggja samtímis.
Kennsluefni er vel skipulagt og greinilega gert af umhyggju og þekkingu.
Það skilar sér vel áhugi kennarans og vilji til að gera þetta sem best úr garði. Einnig umhyggja fyrir nemendunum.
Uppbygging kennslunar er mjög góð með fyrirlestri og verklegum æfingum til skiptins.
Mér fannst koma vel út að gera skriflegar æfingar/próf.
Nægur tími er gefin til spurninga og umræðna.”
Höfuðbeina og spjaldhryggjöfnun
Þann 2. október 2009 18:29, skrifaði Matthildur Matthíasdóttir
Dóttir mín sem er 6 ára hafði verið að fá reiðisköst sem stóðu yfir í frá 30-90 mínútur með öskrum og grenji og heyra mátti mikinn sársauka í tjáningunni. Hún var oft fljótt pirruð og stutt í skapvonsku. Hafði þetta ástand varað í um ár. En á milli kasta var hún algjör engill og fólk hissa á lýsingum mínu á köstum.
Fæðingin hennar gekk erfiðlega,ég fékk mænurótadeyfingu og tók fæðingin langan tíma. Ýmis inngrip eins og sogklukka var notuð. Ég var orðin ráðalaus á hvernig ég gæti lagað þetta ástand hjá dóttur minni, ég hafði leitað til sálfræðinga sem gerðu ýmis próf og kannanir á henni og ekki fannst þeim mikil skekkja til að hafa áhyggjur en ef þetta versnaði væru lyf við köstunum. Svo var mér bent á að prufa að fara með hana í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun því köstin og vanlíðan gætu stafað af erfðri fæðingu. Hafði ég heyrt hjá vinkonu minni að þetta hafði gert kraftaverk fyrir son hennar sem hefði verið svipaður dóttur minni.
Byrjaði ég með hana í meðferð og í fyrsta tíma var ég spurð hvernig fæðinginn hennar hefði gengið og sá græðarinn að þetta tengdist að miklu leyti fæðingunni. Dóttir mín er búin að fara í 6 tíma og er allt annað barn. Hún er lífsglaðari, tjáningin allt önnur getur bæði tjáð sig þegar eitthvað bjátar á og tjáð jákvæðar tilfinningar, hjálpsamari, vill taka meiri þátt í hlutum í staðinn fyrir að einangra sig og reiðisköstin eru hætt. Hún hefur einnig verið að nota blómadropa samhliða meðferðinni sem hjálpa henni að halda tjáningunni við.
Þetta hefur verið ótrúlega ánægilegur árangur sem hefur bætt líðan hjá henni og öllum í fjölskyldunni. Mæli hiklaust með þessari meðferð áður en börnum eru skömmtuð lyf.
Kveðja,
ánægð mamma

