FES Blómadropar og Olíur

Nýlega hóf Heilsustofan Nýjaland ehf. innflutning á FES blómadropum og líkamsolíum.
Flower Essence Services er mjög virt fyrirtæki og þekkt fyrir gæði og framúrskarandi árangur á alþjóðavísu í yfir 25 ár. Í dag eru FES vörunar notaðar í yfir 50 löndum, af hundrað þúsund sérfræðingum í heilbrigðisstéttinni. DEMETER samtöki hafa gefið FES blómadropunum sinn gæðastimpil sem lífelfd (BYODYNAMIC) vara.
Hvað eru FES blómadropar?
Það má segja að blómadropar tilheyri nýrri grein lækninga sem öðlast krafta sína frá lífskröftum blóma og jurta. Þeir eru fullkomlega öryggir, náttúrulegir og framleiddir við bestu hugsanlegu aðstæður af alúð, kærleika og vandvirkni.
Blómadropar raska ekki öðrum hefðbundnum lækningum og þeir koma ekki í staðinn fyrir þær. Hver sem þarfnast hjálpar má nota blómadropa frá 0 – 99 ára.
Hvaða árangri nærðu með blómadropanotkun?
Blómadropar eru ekki undralyf sem er allra meina bót, heldur auka þeir getuna til að takast á við áskoranir eða erfiðleika lífsins og vinna úr þeim.
Breytingar sem geta t.d. verið; betri svefn, enginn kvíði, meiri árangur í vinnunni og námi, aukin og betri samskipti og tjáning, bætt sjálfsmynd, dýpra innsæi og vitund, hugrekki og trú, ákveðni og markmið, kyrrð og samkennd með lífinu, losun við fíkn, o.fl.
![]() |
FES Blómadropaformúlur fyrir líkama og sálBlómadroparnir eru notaðir til þess að koma á jafnvægi og fylla hjarta okkar af ljósi. Aðferðir til notkunar: Áhrifaríkast er að nota blómadropanna til inntöku. Þeim er spreyjað 4x undir tunguna 4x á dag. Einnig er hægt að blanda þeim við vatn til að minnka bragðið. Einnig er mjög gott að spreyja í kringum sig til þess að hreinsa áruna. |
![]() |
FES OlíurFersk blóm fífilsins eru full af krafti sólarinnar og eru blönduð við lífræna ólívuolíu með E-vítamínum. Laxerolíu er blandað við sem er mjög áhrifarík og þekkt fyrir að efla starfsemi lifrinnar og hjálpa við efnahvörf. Ilmkjarnaolíur úr Rosemary og Juniper auka skynjunina og styrkja blóðrásina. Ilmkjarnaolíur úr Dandelion, Tansy og Zinnia vinna gegn deyfð og stífleika með því að gefa gleði, léttlyndi og jafnvægi. |
![]() |
Hvað eru blómadropar?Blómadropar eru vökvi sem bera með sér kraft og einstakleika hvers og eins blóms eða plöntu. Þeir eru þróaðir upprunulega um 1930 af enska lækninum, Dr. Edward Bach. Blómadroparnir eru sagðir vera mjög nytsamlegir og öryggir í notkun. Þeir innihalda einungis lítið magn af efni og þess vegna eru þeir ekki flokkaðir sem lífefnafræðilegt lyf. Blómadroparnir tilheyra nýrri grein lækninga sem öðlast krafta sína frá lífskröftum úr efnum. |
![]() |
BlómadroparListi yfir alla blómadropa |




